Blizzar!!
Ég veit
eiginlega ekki hvað ég á að tala um í þessari færslu sko, hvort ég
á að segja frá því hvað ég gerði um helgina eða koma með einhverjar
rugl pælingar. Spá í að koma bara með sitt lítið af hverju... En
helgin var hin rólegasta, á föstudagskvöldið var bara tekið Ungfrú
Ísland í rólegheitum heima hjá Högna og að sjálfsögðu urðu menn að
velja sér sigurvegara og þar sem að síðustu 10ár hef ég valið rétt
að þá varð engin breyting á í þetta skiptið, var reyndar búin að
velja aðra en sá svo að mér og valdi hana sem vann áður en allt var
tilkynnt þannig að ég varð sigurvegari í en eitt skiptið, eftir
keppnina var bara farið heim.
á
laugardaginn skelltum við Arnar Már okkur í bæjinn og spókuðum
okkur í kringlunni og það er allveg merkilegt hvað maður hittir
mikið af fólki sem maður þekkir liggur við að það hafi endaði í 3ja
tug manns til að mynda var Högni og Stebbi, Salvar og Agla, EvE
Laufey og síðast enn ekki síst Jón Ragnar betur þekktur sem gaurinn
sem var í öllum Versló-leikritum meðal annars Sólsting, gaman að
því ! enduðum reyndar á að kaupa okkur ekki einn skapaðan hlut,
kæruleysi það! en um kvöldið lá leið okkar á Barbró þar sem að
helling af liði var með útskriftarveislu og sáum við sóma okkar í
að láta sjá okkur og sjálfsstjórnin var allveg að fara með okkur
þar sem að við máttum auðvita ekki drekka, þannig að ALLIR sáu sér
leik á borði og voru að bjóða okkur bjór og fleira, reyndar gaman
að chilla þarna þar sem að flestir voru komnir í góðan ham, svo
enduðum við bara á rúntinum með Jóni Vilhelm sem var stjarfur eftir
God of War spilamennsku og Herra Íslandi sjálfum honum Darra,
reyndar endaði ég kvöldið á að bjarga mannslífi og á ég inni huges
greiða fyrir það og er enn að gera upp fyrir mig hvað það á að
vera
(nú kemur smá Pæling)
Okkur
strákunum hefur alltaf þótt mikil snilld að Darri vann herra Ísland
en eins og drengurinn er yfirleitt frekar hógvær útaf því öllu
saman að þá finst okkur að hann eigi að nota þetta meira, til dæmis
ef hann fer útí búð að það er komið að því að borga þá á hann bara
að segja ,,ég? borga, hahahhaa veistu ekki hver ég er " eða ef
hann er stoppaður af löggunni ,, hahah þú sektar mig ekki, ég er
Herra Ísland" þannig að Darri þegar þú lest þetta þá skora ég á þig
að nota þetta meira djeeeeng!!
Sunnudagurinn fór í endalaust chill þangað til að ég fór á
æfingu og eftir hana ákváðum við Högni að skella okkur á Pirates of
the Carabian, þar sem að ég var this close að labba út í hálfleik
en seinni hlutin var mun skárri þannog að þetta bjargaðist, svooo
fór ég bara heim að sofa og í gær var leikur á móti Fylki í árbænum
sem ég nenni ekki að tala um ! endaði reyndar 2-2
í morgun
var ég síðan vakinn með því smsi að ég yrði að blogga og sjaldan
skorast ég undan áskorun þannig að gjörðu svoo vel
np: Til
Þín - SleepMode